Um skólann
                    

Matseðill

Mentor

Starfsfólk

Bekkir

Nemendaráð

Tenglar

Skólaakstur

Myndir

Verk nemenda

Eyðublöð

Sameinaður Tón-, Leik- og Grunnskóli Mýrdalshrepps er í Vík í Mýrdal. Nemendur eru úr þorpinu og sveitinni vestan og austan Víkur.  Skólahverfið er Mýrdalshreppur.  Leikskólanemendur eru 28 talsins og starfsmenn 6. Í Tónskólanum eru 38 nemendur og 2 starfsmenn.  Grunnskólinn  er samkennsluskóli  með 72 nemendur  í  1. - 10. bekk á aldrinu 6 – 15 ára. Við Grunnskólann starfa 17 manns.

Skólastjóri er Magnús Sæmundsson, með honum starfa þrír deildarstjórar: Anna Björnsdóttir (grunnskóladeild), Halla Ólafsdóttir (eikskóladeild), Kristinn J. Níelsson (tónskóladeild).


Merki skólans
er sett saman af litum regnbogans og Reynisdröngum. Það er vísun í að Grunnskóli Mýrdalshrepps byggir á traustum grunni þar sem gjöful og fögur náttúra skapar umgjörð um skapandi stofnun sem leitast við að koma til móts við fjölbreytt litróf manneskjunnar í leik og starfi.

gæði - gleði - gróska - gagn

eru kjörorð skólans og marka honum framtíðarsýn
smelltu á merkið til að lesa um kjörorðin

Mannrækt og umhverfi
Unnið er markvisst með samskipti, einstaklingsmiðað nám og skrefin sjö að Grænfánanum.
Skólinn er aðili að verkefni Lýðheilsustofnunar
Allt hefur áhrif, einkum við sjálf
 

 

 

Grunnskóli Mýrdalshrepps, Mánabraut 3, 870 Vík, sími: +354 487 1242 netfang: gemsi@ismennt.is